Starfsheitið skipulagsfræðingur

Allir sem hafa lokið menntun á sviði skipulagsfræða geta sótt um leyti til að nota starfsheitið skipulagsfræðingur hjá ráðuneytinu. Starfsheitið er lögverndað samkvæmt lögum nr. 8/1996.

Umsókn um starfsheitaleyfi er send til Atvinnuvegaráðuneytisins. Skipulagsfræðingafélag Íslands veitir ráðuneytinu umsögn og metur hvort menntun umsækjanda uppfyllir skilyrði fyrir stafsheitaleyfi.

Ef umsögn SFFÍ er jákvæð og leyfi veitt birtist nafn viðkomandi á lista ráðuneytisins yfir þá sem hafa leyfi til að nota starfsheitið skipulagsfræðingur.

Í kjölfarið getur skipulagsfræðingur sótt um að gerast félagsmeðlimur í Skipulagsfræðingafélagi Íslands.