Frétt
Aðalfundur SFFÍ 2026
13. febrúar 2026
Stjórn Skipulagsfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að boða til aðalfundar félagsins þann 24. febrúar n.k. kl. 17 í húsnæði VSÓ ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík. Fundurinn verður einnig aðgengilegur á Teams. Félagar fengu sendan sendan tengil með fundarboði.
Dagskrá aðalfundar er skv. lögum félagsins þ.e. ársskýrsla stjórnar, uppgjör reikninga og kosning í stjórn.
Að lokinni lögbundinni dagskrá mun Ólafur Árnason forstjóri Skipulagsstofnunar flytja stutt erindi: „Sameining Skipulagsstofnunar og HMS, tækifæri og áskoranir.“
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í umræðum.
Tillögur að framboðum í stjórn félagsins óskast send með tölvupósti til skipulagsfraedi@gmail.com fyrir 20. febrúar.
Vakin er athygli á að tillögur að breytingum á lögum félagsins þurfa að berast 5 dögum fyrir aðalfund. Einnig er minnt á að félagsgjald þarf að greiða fyrir aðalfund til að hafa atkvæðisrétt, sbr. lögum félagsins.