Lög SFFÍ

1. grein.
Félagið heitir Skipulagsfræðingafélag Íslands, skammstafað SFFÍ. Á ensku er nafn félagsins Icelandic Planners Association, skammstafað IPA. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Starfssvæði félagsins er allt landið.

2. grein.
Markmið félagsins er:

Að vinna að framgangi skipulagsfræðinnar sem sjálfstæðrar fræðigreinar hérlendis, t.d. með kynningar- og fræðslustarfsemi. Að stuðla að faglegum vinnubrögðum á sviði skipulags. Að gæta faglegra hagsmuna félagsmanna.

3. grein.
Starfsheitið skipulagsfræðingur er lögverndað. Reglur um nám sem leiðir til fullnaðarmenntunar í skipulagsfræðum eru staðfestar af iðnaðarráðuneyti. Félagið veitir umsagnir um umsóknir um heimild til að nota starfsheitið skipulagsfræðingur, eftir beiðni iðnaðarráðuneytisins. Nám sem veitir full starfsréttindi og viðurkennt er af félagi skipulagsfræðinga í því landi sem námið var stundað skal einnig viðurkennt hérlendis. Ef engin samtök skipulagsfræðinga eru til í því landi sem námi var lokið metur stjórn SFFÍ nám við viðkomandi háskóla. Umsækjandi skal leggja fram gögn frá viðkomandi skóla t.d. prófskírteini eða aðra óyggjandi staðfestingu á að prófgráðu hafi verið lokið. Þeir sem fengið hafa heimild iðnaðarráðuneytis til að nota starfsheitið skipulagsfræðingur geta kennt sig við félagið með skammstöfuninni SFFÍ.

4.grein.
Félagar geta þeir orðið, sem hlotið hafa löggildingu starfsheitisins skipulagsfræðingur. Auk þess getur stjórn félagsins samþykkt að veita þeim aðild, sem hafa menntun sem uppfyllir kröfur til löggildingar á starfsheitinu skipulagsfræðingur (sbr 3 gr.). Stjórnin getur veitt þeim, sem stunda nám í skipulagsfræðum, aukaaðild að félaginu.
Senda skal skriflega beiðni um aðild að félaginu til stjórnar þess. Umsókninni skal fylgja leyfi ráðherra til starfsheitis, þegar við á, eða greinargerð um menntun, ef það leyfi liggur ekki fyrir. Inntökubeiðni skal borin upp til samþykktar á næsta stjórnarfundi. Nái inntökubeiðnin samþykki, er umsækjandi upp frá því félagsmaður.
Heimilt er að kjósa heiðursfélaga Skipulagsfræðingafélags Íslands þá sem hafa stuðlað að framgangi skipulagsfræða eða innt af hendi mikilvægt starf á þessu sviði. Stjórn leggur fyrir félagsfund tillögu um heiðursfélaga, sem staðfesta þarf á næsta aðalfundi.

5. grein.
Aðalfundur fer með æðsta vald í félaginu, en stjórn þess starfar í umboði hans. Aðalfund skal halda í febrúar- eða marsmánuði ár hvert. Til aðalfundar skal boðað með minnst 10 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé þannig til hans boðað eða ef fundurinn samþykkir afbrigði þar að lútandi. Á aðalfundi skal flutt skýrsla stjórnar um félagsstarfið, endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu, ræddar tillögur um lagabreytingar, kosnir stjórnarmenn og endurskoðendur, ákveðin upphæð árgjalda og rædd önnur mál. Halda skal fundargerð á aðalfundi. Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast 5 dögum fyrir aðalfund og skulu þær birtar á heimasíðu félagsins og sendar félagsmönnum degi síðar.

Aukaaðalfund skal halda ef meirihluti félagsmanna óskar þess. Til hans skal boða á sama hátt og aðalfundar.

6.grein
Stjórn félagsins skal skipuð formanni, ritara, gjaldkera auk tveggja meðstjórnenda. Skal hún kosin á aðalfundi til eins árs í senn. Formaður félagsins skal kosinn á aðalfundi úr hópi stjórnarinnar, en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti á fyrsta fundi eftir aðalfund. Ritari gegnir hlutverki varaformanns. Við stjórnarkjör skal tryggt að a.m.k. einn úr fráfarandi stjórn sitji áfram og a.m.k. tveir aðalmenn í stjórninni skulu hafa hlotið löggildingu starfsheitisins skipulagsfræðingur. Kosning skal vera leynileg ef þess er óskað.

Stjórnin fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda, sinnir rekstri og gætir hagsmuna félagsheildarinnar. Stjórnin skal halda félagatal og fjalla um umsóknir nýrra félaga. Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til að sinna tilteknum málefnum félagsins í umboði stjórnar. Við skipun nefnda skal hlutverk þeirra skilgreint og valdsvið gagnvart stjórn.

Stjórnarfund skal halda eigi sjaldnar en annan hvern mánuð. Skylt er að boða stjórnarfund ef tveir menn úr stjórn óska þess. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef þrír stjórnarmenn sækja fundinn. Halda skal fundargerðir á stjórnarfundum.

7.grein.
Almenna félagsfundi skal halda þegar stjórnin ákveður eða ef minnst þriðjungur félagsmanna óskar þess. Fundina skal boða skriflega með hæfilegum fyrirvara og skal fundarefnis getið í fundarboði.

8.grein.
Árgjald skal ákveða á aðalfundi. Námsmenn með aukaaðild að félaginu skulu greiða fjórðung árgjalds. Heiðursfélagar og stjórn félagsins eru undanþegin árgjaldi. Gjalddagi er 1. mars. Atkvæðisrétt á fundum eiga þeir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið. Jafnframt geta aðeins þeir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið setið í stjórnum og nefndum á vegum félagsins.

9.grein.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Gjaldkeri félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess og færir sjálfur bókhald. Á aðalfundi skulu kjörnir tveir endurskoðendur úr röðum félagsins.

10 grein.
Til að breyta lögum þessum þarf samþykki tveggja þriðju hluta atkvæðisbærra félagsmanna á löglega boðuðum aðalfundi, sbr. 5.grein.

11.grein.
Ef slíta skal félaginu þarf samþykki þriggja fjórðu hluta félagsmanna á löglega boðuðum aðalfundi, sbr. 4.grein, og framhaldsaðalfundi sem haldinn skal innan mánaðar frá aðalfundi og boðaður er á sama hátt. Verði félagið lagt niður skal eignum þess ráðstafað í samræmi við markmið félagsins eftir því sem ákveðið verður á áðurnefndum fundum.

—–
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félagsins 30. mars 2004. (Br við 3. og 8. gr. samþykktar 24.mars 2009. Br við 2,3,5,6 og 8 gr. samþykktar á aðalfundi 29.mars 2012)